AKSTURSMAT
Næsta skref að fullnaðarskírteini
Pantaðu akstursmat hjá okkur, á eigin bíl eða kennslubifreið. Hringdu eða sendu SMS og við finnum tíma sem hentar þér.
Akstursmat tekur um 50 mínútur. Það er ekki próf sem hægt er að falla í.
Hvað kostar akstursmat?
Á eigin bifreið
15.000 kr.
Á kennslubifreið
18.900 kr.
Gjald fyrir fullnaðarskírteini greiðist sérstaklega til sýslumanns: 8.600 kr. Sjá umsókn og gjald.
Þrjú einföld skref
Pantaðu tíma
Hringdu eða sendu SMS til Sigurðar í 899 1976 eða Örnu í 772 2762. Segðu okkur hvort þú viljir mæta á eigin bíl eða nota kennslubifreið.
Við keyrum og spjöllum
Við byrjum á því að þú metir þinn eigin akstur. Síðan keyrir þú með ökukennara og þið ræðið hvað gengur vel og hvað má bæta.
Sæktu um fullnaðarskírteini
Við staðfestum rafrænt að akstursmatinu sé lokið. Þú sækir síðan um fullnaðarskírteini á Ísland.is þegar þú uppfyllir skilyrðin.
Hvenær get ég sótt um fullnaðarskírteini?
Meðal skilyrða er að þú hafir haft bráðabirgðaskírteini í að minnsta kosti eitt ár, lokið akstursmati og Ökuskóla 3 og hvorki fengið punkta né verið svipt/ur ökuréttindum síðustu 12 mánuði.
Hver er tilgangur akstursmats?
Markmiðið er að þú áttir þig á styrkleikum þínum og því sem má bæta. Þú berð þitt eigið mat á akstrinum saman við endurgjöf ökukennarans með umferðaröryggi að leiðarljósi.
FINNUM TÍMA SAMAN
Pantaðu tíma í akstursmat
Hringdu, sendu SMS eða tölvupóst.
