← Hafa samband

SIGGI SIG · ÖKUKENNARI

Sigurður Sigurbjörnsson

Að læra á bíl á að vera gaman. Hjá mér færðu rólega kennslu, einfaldar útskýringar og svigrúm til að spyrja og æfa þig.

Útskrifaðist sem ökukennari
2021
Ökukennaranúmer
2121
Sigurður Sigurbjörnsson, ökukennari

FAGMENNSKA, TRAUST OG JÁKVÆTT VIÐMÓT

Það er í lagi að gera mistök

Ég heiti Sigurður Sigurbjörnsson og er oft kallaður Siggi Sig. Ég útskrifaðist sem ökukennari í desember 2021.

Í ökunáminu byggjum við upp færni þína og öryggi í sameiningu. Mistök eru hluti af náminu og gefa okkur tækifæri til að ræða, útskýra og æfa betur.

Hafðu samband og við förum saman yfir næstu skref og finnum tíma sem hentar þér.

REYNSLA ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM

Brot úr starfsferlinum

Samhliða ökukennslunni starfa ég sem varðstjóri/aðalvarðstjóri á fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. Ég er einnig einn af ökukennurum hjá Ökuskóla 3 og forgangsakstursþjálfurum lögreglu, þar sem ég kenni lögreglunemum og starfandi lögreglumönnum forgangsakstur.

Hér má sjá brot af því sem ég hef fengist við í gegnum árin, í máli og myndum. Smelltu á mynd til að stækka hana.

2018–2021

Lögreglan á Suðurlandi

Á þessum árum starfaði ég sem varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, með starfsstöð í Vík í Mýrdal.

2015–2018

Skeljungur

Ég starfaði sem viðskiptastjóri og yfirmaður þjónustuvers hjá Skeljungi. Þá ók ég einnig olíubíl í frítímanum og dreifði eldsneyti til bænda, bensínstöðva og skipa.

2014–2015

Kolur, sjúkraflutningar og snjómokstur

Ég vann hjá Kolur ehf. í Búðardal og var jafnframt sjúkraflutningamaður þar. Veturinn 2014–2015 vann ég meðal annars á snjómokstursbíl á Reykjanesbraut.

1996–2000

Hópbifreiðaakstur

Á þessum árum starfaði ég sem hópbifreiðastjóri hjá Austurleið hf. Á starfsferlinum hef ég einnig ekið hópferðabifreiðum fyrir SBA–Norðurleið og Snæland Grímsson.

Hafðu samband við Sigga

Viltu panta tíma eða spyrja að einhverju? Hringdu, sendu SMS eða tölvupóst.