BE-kerruréttindi

Veitir rétt til að stjórna bifreið í B-flokki með eftirvagn/tengitæki sem er ekki meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd. Leyfð heildarþyngd bíls og eftirvagns mest 7.000 kg. Til að geta fengið kerruréttindi þarft þú að vera orðinn 18 ára og hafa gild ökuréttindi.

Hvernig kemst ég í kerruprófið?

Þú fyllir út umsókn um ökuskírteini og skilar inn til sýslumanns
Merkir við BE ökuréttindi og fullt nafn ökukennara – Sigurður Sigurbjörnsson eða Arna Snjólaug Birgisdóttir.

Þegar þú hefur skilað inn umsókninni sendir þú SMS í númerið 8991976 (Sigurður) eða 7722762 (Arna) með nafni, kennitölu og tölvupóstfangi og segist hafa skilað inn umsókninni.

Þá förum við í að finna prófdag hjá Frumherja.

Við þurfum svo að hittast tvisvar í 90 mínútur hvort skipti fyrir prófið.

Kostnaður:

Kerruprófið kostar 75.000 kr.

Innifalið eru 4 verklegir ökutímar, æfingar fyrir munnlegar spurningar, kennslubifreið og kerra í kerruprófi hjá Frumherja.

Fræðslumyndband um eftirvagna

Einföld skýring á BE réttindum

Prófferlið

Tilgangur ökuprófs er að meta hvort próftaki búi yfir þeirri þekkingu, hæfni og leikni sem áskilin er til að hann geti stjórnað hlutaðeigandi ökutæki af nægu öryggi og til að fá útgefið ökuskírteini. Ökupróf til eftirvagnaréttinda er eingöngu verklegt sem er munnlegt próf, æfingar á lokuðu svæði og aksturspróf. Að loknu hverju prófi tilkynnir prófdómari próftaka hvort hann hafi staðist próf. Að jafnaði skal upplýsa próftaka strax að loknu prófi um þær villur sem hann gerði í prófinu. Standist próftaki ekki próf má hann taka próf að nýju að viku liðinni.

Æfingar á lokuðu svæði

Bakkað fyrir horn

Bakkað í sveig