← Allar fréttir

Strætisvagnabílstjóri flautar á ökunema og bendir á hausinn á sér

Myndskeið úr fyrsta ökutíma 16 ára ökunema sýnir hvers vegna þolinmæði og tillitssemi skipta máli.

Mynd með fréttinni

Í þessu myndbandi er 16 ára ökunemi í fyrsta ökutíma sínum í Reykjavík. Þegar beygt er af Stekkjarbakka inn á Þangbakka tekst honum ekki alveg að staðsetja bifreiðina rétt.

Strætisvagn kemur á móti. Bílstjórinn flautar í stað þess að stöðva og hleypa kennslubifreiðinni áfram. Hann stöðvar síðan fyrir framan hana, horfir á ökunemann og bendir á höfuð sér áður en hann heldur áfram upp Arnarbakka.

Ökunemar eru að stíga sín fyrstu skref í umferðinni. Róleg viðbrögð og tillitssemi annarra ökumanna hjálpa þeim að læra og byggja upp öryggi undir stýri.

Skoða myndbandið á YouTube

Tengdar fréttir

Sigurður Sigurbjörnsson