Strætóbílstjóri virðir ekki biðskyldu
Það getur reynt á unga ökunema þegar aðrir ökumenn virða ekki umferðarreglurnar.

Það er krefjandi verkefni fyrir 16 ára einstakling að setjast undir stýri í fyrsta sinn og aka út í umferðina með ökukennaranum sínum. Áskorunin verður enn meiri þegar aðrir ökumenn virða ekki almennar umferðarreglur.
Í þessu myndskeiði, frá 5. september 2024, sést strætisvagn aka inn á veg án þess að virða biðskyldu. Ökukennarinn þurfti að grípa inn í og stöðva kennslubifreiðina til að koma í veg fyrir árekstur.
Eftir slíkt atvik skiptir máli að ræða við ökunemann um það sem gerðist og útskýra viðbrögðin. Ökunemar þurfa svigrúm til að læra og tillitssemi frá öðrum ökumönnum.



