Heppinn áskrifandi Blökastsins fékk kerrupróf í jólagjöf
Heppinn áskrifandi fékk kerrupróf frá Ökumaður.is á litlu jólum Blökastsins árið 2023.

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju með vinninginn og hlökkum til að aðstoða hann við að öðlast BE ökuréttindi.
Í jólakveðjunni okkar árið 2023 óskuðum við viðskiptavinum og landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við minntum jafnframt á að hægt væri að gefa ökutíma eða kerrupróf í jólagjöf.
Ef þú hefur áhuga á gjafabréfi geturðu haft samband við okkur og sagt okkur hvað þú hefur í huga.
Viltu vita meira?
Hringdu, sendu SMS eða tölvupóst. Við hjálpum þér að finna það sem hentar.



