Ótrúlegur framúrakstur ökumanns á Breiðholtsbraut
Atvik úr ökukennslu á Breiðholtsbraut minnir á hversu mikilvæg tillitssemi er í umferðinni.

Frá því að ég hóf störf sem ökukennari í desember 2021 hef ég orðið vitni að ýmsum uppákomum og framkomu annarra ökumanna í garð ökunema.
Þann 27. mars 2023 vorum við ökuneminn á leið austur Breiðholtsbraut, við Víðidal, þegar ökumaður ók fram úr kennslubifreiðinni eins og sjá má í myndskeiðinu.
Framúraksturinn fipaði ökunemann. Grjótkast frá bifreiðinni olli einnig skemmdum á kennslubifreiðinni, en það má heyra í myndskeiðinu.
Ég biðla til allra ökumanna að sýna ökunemum og öðrum vegfarendum virðingu og tillitssemi. Við höfum öll þurft að læra að aka og enginn fæðist með þessa færni eða þekkingu.



